Hvernig ég vinn
1. Grunnúttekt. Ég fer yfir dreifingu, tilboð og Genius-afslætti á bókunarsíðum og tæknilausnir hótelsins (PMS, rásastjóra og bókunarvél) og skrái stöðuna eins og hún er í upphafi.
2. Beinar bókanir fyrst. Besta verðið og bestu afbókunarskilmálarnir eiga alltaf að vera á vefsíðu hótelsins, með bókunarvél sem er jafn sveigjanleg og bókunarsíðurnar.
3. Verðjöfnuður og verðlagning. Ég finn hvar verð lekur út og nota bókunarhraða, nýjar bókanir og samkeppnisgögn til að stilla verð og tilboð í tæka tíð.
4. RevPAR, ekki bara nýting. Fullt hótel á lágu verði er ekki sigur. Allt er mælt út frá tekjum á hvert laust herbergi.